Fylgihlutir fyrir borðstofuborð
Það skiptir ekki máli hvort þú eigir antíkborð úr viði eða stórt mahóníborð með stólum í stíl - réttu fylgihlutirnir fyrir borðstofuborðið geta gert gæfumuninn fyrir heildarútlitið. Hlutirnir eru frábær leið til að gera borðstofuna eða eldhúsið einstakt. Ef þú vandar valið þá geta húsmunir fyrir borðstofuborðið auðveldlega dregið fram sköpunargáfuna í þér og jafnframt gefið rýminu fallegt heildarútlit. Aukahlutir fyrir borðstofuborð eru fáanlegir í mismunandi efnum, gerðum, litum og stílbrigðum og því getur reynst nokkuð erfitt að velja réttu aukahlutina. Við höfum til allrar lukku útbúið þessar einföldu leiðbeiningar fyrir þig.
Val á réttum fylgihlutum fyrir borðið
Borðstofustell er líklegast mikilvægasti aukahluturinn fyrir borðstofuborðið. Stellið getur innihaldið súpudiska, flata diska, hliðardiska og jafnvel skálar, föt, salatskálar og undirskálar. Efniviðurinn gæti verið postulín eða leir. Þú ættir að geta fundið stell sem þolir reglulega notkun og sem hægt er að setja í örbylgjuofninn.
Salt- og piparstaukar gera máltíðina enn betri og svo gætirðu líka valið að vera með olíu- og ediksett á borðinu. Þú gætir einnig valið að vera með skrautmun á miðju borðinu til að skapa fallegan miðpunkt. Svo máttu ekki gleyma skrautinu. Fyrir sérstök tilefni mælum við með því að þú sért með aukahluti úr fallega skreyttu postulíni.
Hnífaparasett fást í allskyns efniviðum með ýmsum áferðum sem mæta þörfum hvers og eins. Íhugaðu að eiga kristalsglös, kampavínsglös og bjórglös fyrir sérstaka kvöldverði eða viðburði.
Hvernig þú blandar saman efnum, litum og stílbrigðum
Sumum finnst gaman að hafa allt í stíl, á meðan aðrir telja að aðeins sé hægt að gera borðið fullkomið með því að blanda allskyns þáttum saman. Blanda af ýmsum þáttum gerir okkur kleift að vera með gamla hluti sem við höfum erft í bland við nýrri hluti sem eru nútímalegri.
Gott er að hafa í huga lit efna, borðdúka eða diskamotta, gólfsins, veggja og annarra aukahluta. Leikur með mismunandi liti getur hjálpað þér við að finna réttu stemninguna fyrir rýmið. Þú getur breytt örlítið til á hverjum degi og séð til þess að það sé gaman að leggja á borðið.
Ertu í leit að réttu fylgihlutunum fyrir borðstofuborðið? Skoðaðu frábært úrvalið hjá okkur.